Pistlar

27.05 2010 12:05

Ánægð börn – ánægðir foreldrar

Foreldrar lítilla barna vita að örugg vistun fyrir börn þeirra er forsenda fyrir því að fjölskyldulífið gangi eðlilega fyrir sig. Þá staðreynd höfum við sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur haft að leiðarljósi, enda hafa valkostir fyrir foreldra barna á leikskólaaldri í dagvistarmálum í Reykjavík aldrei verið fleiri. Um 6800 börn eru í leikskólum borgarinnar auk þess sem um 800 börn þiggja þjónustu dagforeldra og 700 þjónustutryggingu. Reykjavíkurborg hefur ávallt haft mikinn metnað í leikskólamálum en útgjöld til leikskólamála samkvæmt fjárhagsáætlun 2010 eru um 7% hærri að raungildi en á árinu 2006.

 

Við sem störfum að leikskólamálum í Reykjavík leggjum metnað okkar í að hlúa að börnum og sjá til þess að þau búi við öruggt og örvandi umhverfi sem styður og eflir hæfileika þeirra á alla lund. Við vitum líka að ánægð börn eiga ánægða foreldra. Ánægja foreldra með leikskóla Reykjavíkur hefur aukist en samkvæmt nýlegri könnun eru 95% foreldra ánægð með leikskóla borgarinnar. Á síðustu árum hefur fagmenntuðu starfsfólki fjölgað þrátt fyrir miklar sveiflur í starfsmannahaldi leikskóla, þrír nýir leikskólar hafa verið teknir í notkun, ný sérkennslustefna búin til og gerðir nýir samningar við nítján sjálfstætt starfandi leikskóla. Hvatningarverðlaun leikskóla voru sett á laggirnar og ungbarnaleikskólum fjölgað. Nú eru leikskólagjöld almennt niðurgreidd um 90% af sjóðum borgarinnar en leikskólagjöld lækkuðu um 25% á kjörtímabilinu og námsgjald fellt niður fyrir systkini. Í maí var svo tekin ákvörðun um fjölgun leikskólarýma í borgarreknum og sjálfstætt starfandi leikskólum til að tryggja að öllum börnum , sem verða tveggja ára á þessu ári, standi leikskólavistun til boða í haust. Þá hefja 1400 börn leikskólagöngu sína í Reykjavík en aldrei hafa fleiri leikskólabörn fengið þjónustu í borginni en nú.

 

Ekkert af ofangreindu er sjálfgefið og hefur krafist óeigingjarnar vinnu embættismanna, starfsmanna leikskóla og borgarfulltrúa. Staða leikskólamála í Reykjavík er frábær og eru nú starfræktir um hundrað afar metnaðarfullir og faglegir skólar. Staðan er síður en svo sjálfsögð og framundan eru tímar þar sem nauðsynlegt verður að halda vel á spöðunum til að þjónusta við yngstu börnin skerðist ekki. Það er mikilvægt að leggjast á árarnar fyrir börnin og foreldra þeirra og tryggja uppbyggingu skóla og annarra þjónustuúrræða með fagmennsku og öryggi að leiðarljósi. 

Greinin birtist í Morgunblaðinu 27. maí.