Pistlar
20.08 2008 01:21
„Eins og Morfeus“
Þessi leikur var ótrúlegur milli Íslands og Póllands. Íslendingar voru betri allan leikinn og ef ekki væri fyrir endalausar brottvísanir hefði liðið haldið 4-5 marka mun. Hreint út sagt frábær liðsheild, vörn, markfærsla og stemning.
Óli fékk að tala „óklipptur“ eftir leikinn eins og Sveppi krafðist um daginn og sagði okkur að liðið gæti allt. Sumir segja að hann sé ekki að ná sér inni í leikinn en að mínu mati er hann í fullu starfi við að stýra leiknum og spila inn á línuna til allra þessara frábæru leikmanna. Í kjölfarið er frábær breidd í liðinu og ég fæ trú á því að þeir komist alla leið.
En við Óli fengum mikla kennslu hjá afa okkar Þóri í grísku goðafræðinni, og Óli mun meira en ég. Óli hefur stúderað goðafræðina mikið í námi og leik síðan. Áðan sagði Óli að honum liði eins og Morfeus sem er goð drauma. Morfeus er eina goðið sem dreymir mannsformið og líklega er Óli þá farinn að dreyma alla leiki, sendingar og mörk.
Áfram Ísland, við styðjum ykkur strákar.
Nýjustu skrif
02.02 2012 18:37
Vöggugjöf
19.01 2012 08:41
Spegluð kennslustund
18.01 2012 22:44
Fróðleikur um speglun
22.12 2011 23:05
Meira um leikskóla
15.12 2011 23:23