Pistlar
Fíllinn í þinghúsinu
Meginverkefni ríkisins næstu mánuði og ár er að halda skuldum í lágmarki. Það hjálpar til að við hrun bankanna var ríkissjóður skuldlítill en síðan hefur sigið á ógæfuhliðina. Hluti af lausninni felst í að leita leiða til að halda arðbærum fyrirtækjum í rekstri og atvinnustigi sem hæstu og semja af fullri hörku um Icesave skuldbindingar.
Einn meginþáttur þessa verkefnis hlýtur að felast í leiðum til að draga úr útgjöldum ríkisins. Í því duga engin vettlingatök. Í bjartsýnu mati fjármálaráðherra eru skuldir ríkissjóðs áætlaðar 1.100 milljarðar í árslok 2009. Þetta er án skuldbindinga vegna Icesave og AGS sem samtals nema 1.200 milljörðum. Vaxtagreiðslur þessa árs áætlar ráðherrann tæpa 90 milljarða. Til samanburðar kom fram í vikunni að heildaraflaverðmæti íslendinga árið 2008 nam 99 milljörðum. Hallarekstur ríkisins á þessu ári er áætlaður 150 milljarðar. Tölurnar eru ógnvænlegar og ekki vil ég þurfa að velta fyrir mér stöðu mála ef niðurstaðan verður verri en Steingrímur áætlar.
Í þessu ljósi er furðulegt hversu lítið þingmenn, ólíkt sveitastjórnarmönnum, hafa rætt hvernig ríkissjóður geti sparað og minnkað útgjöld. Þetta á ekki síst við um þingmenn þeirra flokka sem nú sitja í minnihlutastjórn. Umræðan um hagræðingu og niðurskurð er fíll í þinghúsinu sem enginn þykist taka eftir.
Við stjórnvölinn sitja mestu eyðsluklær íslenskra stjórnmála. Núverandi forsætisráðherra einfaldlega neitaði að skera niður í sínu ráðuneyti í fyrri ríkisstjórn þar sem hún sat sem félagsmálaráðherra. Sömu flokkar mynduðu R-listann í Reykjavíkurborg. Á valdatíma þeirra jukust skuldir borgarinnar úr öllu hófi, á tíma þegar lag hefði verið að minnka skuldir. Undirrituð tók þátt í kosningabaráttu árið 2002 þar sem skuldasöfnun R-listans var meginefni baráttunnar. R-listinn vann þá baráttu þar sem fólki fannst þetta ekki skipta máli þá.
Mánuður er í kosningar. Núverandi minnihluta ríkisstjórn og þingmenn allir verða að útskýra hvernig eigi að takast á við hagræðingu í kerfinu. Kjósendur eiga rétt á að vita hvort hækka eigi skatta, skera eigi niður (og þá á hvaða forsendum) eða hvort stinga eigi höfðinu í sandinn. Fílinn í þinghúsinu verður að fara að ræða.
Greinin birtist í Fréttablaðinu í dag, 19.3.2009.