Pistlar
Sérkennsla skorin niður
Sérkennsla er viðkvæmasta þjónusta sem Reykjavíkurborg veitir í leik- og grunnskólum og fjárhagsáætlun Besta flokksins og Samfylkingarinnar sýnir 9% niðurskurð. Svona mikil hagræðing mun ekki nást með einhverjum skipulagsbreytingum enda er umræddur fjárhagsliður samsettur úr úthlutunum fjár til barna með greiningar eftir skýrum flokkunum og svo vegna launa til sérkennara. Ég fullyrði að 9% hagræðing mun bitna beint á þjónustu við börn.
Í tillögum að fjárhagsáætlun borgarinnar sem lögð er fram í dag verður þetta staðfest. Áætlað er að kostnaður vegna sérkennslu í leik- og grunnskólum borgarinnar fer um 185 milljónir fram úr áætlun á 2010 og nemur í lok árs 1290 milljónum. Í nýrri fjárhagsáætlun er reiknað með að verja litlu minna til sérkennslu á næsta ári eða 1255 milljónum. Þetta segir þó ekki alla söguna því kostnaður fer að fram úr áætlun (sem skýrist af miklu fleiri greiningum og aukinni fagþekkingu og menntun starfsfólks) á næsta ári líka ef núverandi kerfi greininga og úthlutana helst óbreytt. Ef miða ætti við áætlanir að öllu óbreyttu ætti kostnaður við sérkennslu að vera 125 milljón krónum hærri eða 1375 milljónir. Það er því ljóst að úthlutunarkerfi greininga mun breytast á nýju ári. Það er líka mikilvægt að benda á að þessi hagræðing næst einungis að hluta seinna hluta árs vegna þess að í fyrsta lagi eru hagræðingartillögurekki komnar fram og alfarið óræddar og í öðru lagi vegna skipulags grunnskóla sem hefur það að verkum að reglur breytast að hausti. Þetta hefur í för með sér að hagræðingin skellur enn harðar á ársgrundvelli.
Þetta hafa borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna ítrekað gagnrýnt í menntaráði á óformlegum og formlegum fundum, nú síðast þegar 9 mánaða uppgjör var lagt fram. Við bentum á að búist sé við að nemendum með greiningu fjölgi um áfram níu prósent á milli ára og taka ætti tillit til þess í fjárhagáætlun. Það sé ekki gert og því sé þetta falinn niðurskurður.
Það lítur því út fyrir að hart sé vegið að sérkennslu í leik- og grunnskólum í nýrri fjárhagsáætlun borgarinnar. Niðurskurðinn er hvergi sýnilegur því framúrkeyrslan er svo mikil á milli ára. Það er mjög gagnrýnivert að þessar upplýsingar séu ekki uppi á borðum. Foreldrar og sérfræðingar hafa í gegnum árin barist fyrir því að fá stuðninginn aukinn en nú stefnir í niðurskurð. Nú verða foreldrar og sérfræðingar að fylgjast vel með hvar hagræðingin skellur.