Pistlar
20.09 2008 01:23
Kennarasamningar opnaðir
Hér er hægt að horfa á og lesa um miklar og áhugaverðar breytingar sem fræðslustjóri Washington DC er að gera á skólakerfi borgarinnar. Fylgst er með þessum breytingum af mörgum kennarafélögum því ef þessar breytingar fara í gegn gætu kennarar sem samþykkja minna starfsöryggi en mun hærri laun sem tengd eru við árangur barna orðið þeir hæstlaunuðustu í Bandaríkjunum. Það væri gaman að fá nánari upplýsingar um þessa samninga og þá sérstaklega um hvernig árangur barna er metinn.
En þetta er áreiðanlega það sem koma skal fyrir kennara. Við komumst ekkert áfram í jafnlaunastefnukerfi í kennarastétt frekar en öðrum stéttum. Launanefnd sveitarfélaga hækkar laun og allir hinir hækka í kjölfarið. Svona gengur þetta án mikilla breytinga.
Ísaksskóli og Norðlingaholtsskóli eru báðir með tilraunir í gangi þar sem kjarasamningar eru sveigjanlegri og laun hærri (grundvallað á bókun 5). Norðlingaskóli er með alla sína kennara í þessu umhverfi en Ísaksskóli gerði samningana valkvæða svo að eldri kennarar héldu sínum réttindum, aðallega starfslokaréttindum. Við þurfum að fá umræðu um hvernig þessum kennurum líður með sín réttindi og kjör í þessum skólum.
Nýjustu skrif
02.02 2012 18:37
Vöggugjöf
19.01 2012 08:41
Spegluð kennslustund
18.01 2012 22:44
Fróðleikur um speglun
22.12 2011 23:05
Meira um leikskóla
15.12 2011 23:23